The Usual Suspects (1995)

usual_suspects_0Loksins get ég sett eitt strik í viðbót á "listi yfir þær myndir sem ég skammast mín fyrir að vera ekki búinn að sjá". Var að reyna að finna eitthvað fyrir mig og pabba að horfa á á sunnudagskveldi og rakst þá á þessa

Ég get sagt með fullri vissu að þetta er ein sú besta ræningja/glæpona mynd sem nokkru sinni hefur verið gerð. En byrjum á byrjuninni. Fyrir um þremur árum vann ég með gaur sem hafði þvílíkan áhuga á bíómyndum og hafði á yngri árum bókstaflega hangið á videoleigum. Í kæruleysi sínu sagði hann mér brandara um þessa mynd og í honum innifólst alveg þvílíkur spoiler um myndina..... jæja þegar hann var búinn að segja mér brandarann hló ég nú ekkert svakalega mikið og sagði bara "þú veist að ég á eftir að sjá þessa mynd !".... "úps". Þetta var kannski ekki jafn mikill spoiler og með Sixth Sense en samt...... þrátt fyrir þetta kom það samt ekkert svakalega mikið niður á myndinni susual kevinjálfri eins og ég hafði haldið. Þetta var einfaldlega of góð mynd ! Þeir sem vilja heyra brandarann og hafa séð myndina skulu einfaldlega pikka í mig Wink

Ef eitthvað mætti nefna um myndina þá er það í fyrsta lagi plottið. Það er einfaldlega geggjað. Fjallar um 5 glæpamenn sem lenda saman í uppstillingu (eða hvað sem á að kalla það. Sjáið það á myndinni fyrir ofan). Koma þeir sér saman um að hjálpast að við verkefni.  Á einhvern furðulegan hátt tengjast þeir þó allir og jafnvel án þess að vita í raun af því ! Woundering

Leikur leikaranna var til fyrirmyndar og má segja að Kevin Spacey hafi farið á kostum sem Roger "Verbal" Kint, nokkurskonar spastískan einstakling en að því er virðist alveg fluggáfaður.

Það er verst að geta í raun ekki sagt meira án þess að fara að eyðileggja eitthvað fyrir fólki.....en þetta er ein af þeim myndum sem allir verða að sjá. Verið þó með fulla vitund þegar horft er á hana því hún er alveg temmilega flókin og bara svoooo þess virði ! 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valey

Já ætli ég reddi mér þessari mynd ekki bara næst þegar mér leiðist ;)

Valey, 31.1.2008 kl. 19:52

2 identicon

Ég hef einmitt ekki séð þessa síðan ég sá hana í bíó. Hef bara einhvern veginn á tilfinningunni að þetta sé ekkert rosalega "rewatchable" mynd, enda loka-twistið svo stór hluti af henni.

 4 stig.

Siggi Palli (IP-tala skráð) 11.4.2008 kl. 21:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband